Bandarísk yfirvöld hafa afhent Ítölum 337 stolna fornmuni en lögregla beggja ríkja hafði samvinnu um að hafa uppi á þeim. Þetta er einhver mesta endurheimt minja á síðari tímum.Munirnir, allt frá fornum rómverskum höggmyndum til grískra, etrúskra og egypskra verka, voru í gær sýndir í höfuðstöðvum þeirrar deildar ítölsku lögreglunnar sem vinnur að björgun menningarverðmæta.Ítalir hafa áratugum saman reynt að stöðva viðskipti með stolna fornmuni og hafa á síðustu árum endurheimt þúsundir gripa sem taldir eru milljóna evra virði. Einn sá merkilegasti er fyrstu aldar marmaralíkneski af Alexander mikla sem stolið var af safni í Róm 1960.Einnig mátti sjá bronsstyttu sem stolið var í rómversku borginni Herculaneum, sem grófst ásamt borginni Pompeii undir öskulagi árið 79 þegar Vesúvíus gaus. Jaf