Donald Trump Bandaríkjaforseti hótaði í gær að fækka hermönnum með viðveru í Þýskalandi vegna andstöðu kanslarans Friedrich Merz við þátttöku í stríðinu gegn Íran. Hann ýfði einnig fjaðrir forsetans fyrr í vikunni þegar hann sagði Írana hafa lítillækkað Bandaríkjamenn við samningaborðið.Áætlað er að milli 35 og 50 þúsund hermenn séu í herstöðvum Bandaríkjanna í Þýskalandi. Trump hefur lengi verið gagnrýninn á Atlantshafsbandalagið og sagt það fljóta sofandi að feigðarósi.Vladimír Pútín Rússlandsforseti brýndi Trump til að hefja ekki loftárásir á Íran að nýju þegar þeir ræddu saman símleiðis í gær.Trump hefði tekið rétta ákvörðun með því að framlengja vopnahléð og að endurnýjaðar árásir hefðu hræðilegar og illafturkræfar afleiðingar fyrir heimsbyggðina alla. Trump sagði samtalið gott og að