Jeff Landry, sérstakur erindreki Bandaríkjanna fyrir Grænland, er skráður sem einn gesta ráðstefnunnar Future Greenland, sem Viðskiptaráð Grænlands stendur fyrir og hefst 19. maí.Christian Keldsen forsvarsmaður ráðsins segir Landry alls ekki hafa verið boðið, í samtali við KNR. „Við buðum Landry ekki, hann er ekki opinber þátttakandi í ráðstefnunni og við höfum ekkert með komu hans að gera,“ segir Keldsen.Hann telur þó líklegt að Landry láti sjá sig og áréttar að hver sem er geti keypt sér aðgang að Future Greenland-ráðstefnunni sem hverfist um framtíðarþróun viðskipta í landinu. Bandaríska ræðismannsskrifstofan í Nuuk hafi keypt nokkra miða og tilkynnt hverjir fái þá. Landry sé þar á meðal.Um það bil 500 þátttakendur eru væntanlegir á Future Greenland frá um tuttugu löndum. Landry sagðist