Efnahagskerfi Norðurlanda hafa á undanförnum árum orðið berskjaldaðri gegn alþjóðlegri spennu og truflun á aðfangakeðjum. Staða Íslands og Svíþjóðar er betri en Noregs og Danmerkur, sem teljast hvað viðkvæmust.Þetta kemur fram í nýrri skýrslu Norrænu ráðherranefndarinnar um virðiskeðjur landanna, sem treysta mjög á hráefnainnflutning og önnur aðföng frá ríkjum Evrópu og ekki síður Bandaríkjunum og Kína.Þar segir einnig að aðfangakeðjan til Íslands sé fjölbreyttari og stöðugri en hinna landanna, þar sem aðeins 1,2 prósent innfluttra millistigsafurða teljist viðkvæmar. Það sé lægsta hlutfallið á Norðurlöndum og endurspegli meðal annars talsverða notkun endurnýtanlegra orkugjafa. Slíkar vörur nemi að jafnaði um 40 af hundraði heildarinnflutningsins. ÍSLAND Æ HÁÐARA KÍNA MEÐ ÝMSAR VÖRUR Mil