Breiðafjarðarferjunni Baldri verður siglt til Vestmannaeyja í fyrramálið og mun sigla milli lands og Eyja meðan ástandið í Landeyjahöfn varir. Þetta kemur fram í tilkynningu Vegagerðarinnar.Samkomulag hafi náðst um þetta og reiknað með að Baldur hefji siglingar á föstudag. Á meðan falla ferðir Baldurs yfir Breiðafjörð niður.Vegagerðin segir að vegna veðurs og sjólags sé ekki útlit fyrir að hægt verði að hefja dýpkun Landeyjahafnar fyrr en á föstudag. Horfurnar til dýpkunar séu ágætar næstu daga á eftir.Stykkishólmur / Sigrún Þuríður Runólfsdóttir