Stjarnan og Valur áttust við í annarri umferð Bestu deildar kvenna á Samsung-vellinum í kvöld. Stjarnan var sterkari aðilinn allan leikinn og uppskar verðskuldaðan sigur. Birna Jóhannsdóttir skoraði fyrra mark Stjörnunnar en Jana Sól Valdimarsdóttir það síðara. Lokastaðan 2-0.