Leigubílstjórar á Bifreiðastöð Oddeyrar kveðja gömlu leigubílastöðina í vikunni, eftir rúm 70 ár í miðbæ Akureyrar. Samningar náðust við bæjaryfirvöld eftir áralangar deilur en starfsfólkið segir óvissuna vera óþægilega.„Húsið er náttúrulega orðið gamalt og lúið en staðsetningin er eitthvað sem við eigum eftir að sjá virkilega eftir“, segir Lárus Páll Erlingsson, leigubílsstjóri og stjórnarmaður BSO.Bifreiðastöð Oddeyrar hefur verið við Strandgötu síðan 1955 og mörgum Akureyringum er hlýtt til stöðvarinnar, þar sem er kaffistofa og símsvörun. Í áratugi hefur verið hægt að redda ýmsu smálegu í sjoppunni.Þegar fréttastofu bar að garði var hún tómleg og verið var að reyna að koma út síðustu mjólkurfernunum.Leigubílstjórarnir hafa undanfarna daga unnið að því að skipta út gamla BSO-merkinu fyr