Breiðablik lagði Fram, 2-0, á Kópavogsvelli í 2. umferð Bestu deildar kvenna í kvöld. Mörk frá Líf Joostdóttur van Bemmel og Barbáru Sól Gísladóttur tryggðu Blikum sigurinn eftir markalausan fyrri hálfleik. Breiðablik er því með fullt hús stiga eftir sigurinn á meðan Fram er enn án stiga eftir tvö töp.