Allt
Innlent
Erlent
Viðskipti
Íþróttir

Kátir krakkar tóku kisuna og slönguna á Alþjóðlega dansdeginum

Dansinn dunaði dátt við taktfasta tóna í Hörpunni fyrr í dag, þar sem haldið var upp á Alþjóðlega dansdaginn. Börn á öllum aldri og foreldrar þeirra fjölmenntu í sannkallaðri dansveislu þar sem þátttakendur fengu kennslu í Dansi ársins sem saminn var í tilefni dagsins.Félag íslenskra listdansara, Dansverkstæðið, Íslenski dansflokkurinn og List fyrir alla standa að deginum, sem er ætlað að dreifa dansgleði vítt og breitt um landið.„Deginum er fagnað út um allan heim og við erum að reyna að vekja meiri athygli á dansinum og halda upp á hann,“ segir Lilja Björk Haraldsdóttir, formaður Félags íslenskra listdansara.Lára Ísidóra Hafsteinsdóttir og systurnar Kría Valgerður og Bríet Ebba Vignisdætur voru í miklu dansstuði og sögðust hafa lært fjölda spora, á borð við krabbann, kisuna og slönguna.
Kátir krakkar tóku kisuna og slönguna á Alþjóðlega dansdeginum

Skráðu þig inn eða stofnaðu aðgang til að skrifa ummæli

Skoða nánar

Um Blaðbera·Vefþjónusta