Stöðugildum verður fækkað um 40 á Landspítala samhliða öðrum hagræðingaraðgerðum til að slá á rekstrarhalla. Landspítalinn þarf fimm milljarða til að ná endum saman. Forstjórinn vill milda niðurskurðinn eins og kostur er og bindur auk þess vonir við aukið framlag úr ríkissjóði. Áskoranirnar séu margþættar.Á síðasta ári var kostnaður Landspítala rúmar 900 milljónir króna umfram fjárheimildir og tekjur.Það sem af er þessu ári eru gjöld 1,5 milljarði króna umfram fjárheimildir og tekjur.Fjárheimildir þessa árs mæta ekki rekstraráætlun spítalans og munar þar um 5 milljörðum króna.Runólfur Pálsson, forstjóri segir Landspítalann þurfa 13,6 milljarða króna hækkun frá fyrra ári en hafi fengið 8,6. Hann kynnti starfsfólki í dag aðgerðir og lausnir sem ráðist verður í en bindur jafnframt vonir við a