Til stendur að byggja allt að 1.400 íbúðir á næstu árum samkvæmt húsnæðispakka sem ríkisstjórnin kynnti í gær. Húsin verða byggð á ríkislóðum í Reykjavík og aðgerðirnar eru liður í áformum stjórnvalda um að skapa jafnvægi á fasteignamarkaði.Formenn stjórnarandstöðuflokkanna á Alþingi segja þessar aðgerðir bera keim af komandi kosningum.„Þetta er meira af því sama. Þetta gerist alltaf fyrir kosningar. Þá er nýtt húsnæði kynnt á glærum. Oft eitthvað sem var búið að kynna áður og væntingar um eitthvað sem gerist í framtíðinni,“ segir Sigmundur Davíð Gunnlaugsson formaður Miðflokksins.Guðrún Hafsteinsdóttir formaður Sjálfstæðisflokksins tekur í sama streng.„Enn einu sinni kemur Samfylkingin fram í borginni svona kortér fyrir kosningar. Með sína umbúðapólitík og kynnir hér lausnir til að leysa