Fimm listar eru í framboði á Ísafirði fyrir sveitarstjórnarkosningar í vor. Oddvitar þeirra mætast í umræðum. Þátttakendur eru: * Gylfi Þór Ólafsson, oddviti Viðreisnar * Jónas Þór Birgisson, oddviti Sjálfstæðisflokksins * Kristján Þór Kristjánsson, oddviti Framsóknarflokksins * Svanfríður G. Bergvinsdóttir, oddviti Samfylkingarinnar * Sævar Óli Hjörvarsson, oddviti Miðflokksins Ísafjarðarbær er stærsta sveitarfélag Vestfjarða með um 4 þúsund íbúa og jafnframt sautjánda stærsta sveitarfélagið á Íslandi. Þéttbýliskjarnar í sveitarfélaginu eru Flateyri, Hnífsdalur, Ísafjörður, Suðureyri og Þingeyri.Umsjónarmenn eru Gréta Sigríður Einarsdóttir og Ólöf Rún Erlendsdóttir.