Allt
Innlent
Erlent
Viðskipti
Íþróttir

Hópur ungmenna réðst á dreng í Hamraborg

Drengur á táningsaldri var fluttur á bráðamóttöku Landspítalans eftir að hópur ungmenna veittist að honum skammt frá Heilsugæslunni í Hamraborg í Kópavogi í dag. Drengurinn var meðvitundarlaus, samkvæmt sjónarvottum sem fréttastofa ræddi við.Að sögn lögreglu voru þeir sem eru grunaðir um að hafa ráðist á hann farnir þegar lögregla kom á vettvang.Upplýsingar um líðan drengsins liggja ekki fyrir.Starfsmenn heilsugæslunnar hlúðu að drengnum meðan beðið var eftir sjúkrabíl.Starfsmenn heilsugæslunnar hlúðu að drengnum meðan beðið var eftir sjúkrabíl. Samkvæmt heimildum fréttastofu var biðin eftir sjúkrabílnum slík að hringja þurfti aftur til að kanna hvenær væri von á honum. Nærri hálftími hafi liðið frá fyrsta símtali og þar til sjúkrabíll kom á staðinn.
Hópur ungmenna réðst á dreng í Hamraborg

Skráðu þig inn eða stofnaðu aðgang til að skrifa ummæli

Skoða nánar

Um Blaðbera·Vefþjónusta