Allt
Innlent
Erlent
Viðskipti
Íþróttir

Framsókn boðar Reykjavík á grænu ljósi

Framsóknarflokkurinn kynnti áherslumál sín fyrir komandi borgarstjórnarkosningar á blaðamannafundi í Elliðaárdal í dag. Flokkurinn boðar Reykjavík á grænu ljósi og leggur áherslu á að þörf sé á breytingum í forystu Reykjavíkurborgar.Á meðal stefnumála Framsóknar í Reykjavík er að auka sveigjanleika í leikskólamálum með því að styðja við vinnustaði sem vilja opna daggæslu, að bjóða tekjulágu eldra fólki upp á frístundastyrk, að færa meira líf í hverfi borgarinnar og að opna fjölskyldumiðstöð til að þjónusta barnafjölskyldur.„Við í Framsókn segjum að Reykjavík hafi alltof lengi verið á rauðu ljósi. Við þurfum að kveikja græna ljósið, fá grænar tölur í bókhaldið, við þurfum að fá græna ljósið í umferðina, greiða úr umferðarflækjum og fjárfesta í innviðum fyrir samgöngur,“ segir Einar Þorstein
Framsókn boðar Reykjavík á grænu ljósi

Skráðu þig inn eða stofnaðu aðgang til að skrifa ummæli

Skoða nánar

Um Blaðbera·Vefþjónusta