Fjórir sitja í gæsluvarðhaldi vegna rannsóknar á umfangsmiklu fíkniefnamáli sem snýr að innflutningi á rúmlega fjórtán lítrum af amfetamínbasa, að sögn lögreglu. Áður hefur komið fram að þrír þeirra hafi verið handteknir í viðamiklum aðgerðum um miðjan apríl í tengslum við grunaðan innflutning með Dettifossi, gámaflutningaskipi Eimskips.