LAUFEY - MADWOMAN Tónlistarkonan Laufey Lín Jónsdóttir er á siglingu þessa dagana og sendi frá sér nýlega lagið Madwoman. Lagið er tekið af plötu hennar A Matter of Time : The Final Hour, er í hennar elegant jazzaða stíl og fjallar um misheppnað samband og tilfinningalegt ójafnvægi. UNNSTEINN MANUEL - BERGNUMINN Unnsteinn Manuel Stefánsson hefur sent frá sér lagið Bergnuminn af plötunni Gæðablóð. Lagið er frumsamið gospel-popp eftir Unnstein og Kristófer Rodriguez Svönuson en textann samdi hann með Þóru Karítas Árnadóttur. UNDIRALDAN ÞRIÐJUDAGINN 28. APRÍL Rafpoppið er í meirihluta í Undiröldunni þessa vikuna þar sem er boðið upp á nýtt efni frá Laufeyju, Unnsteini Manuel, Lúpínu og fleirum. LÚPÍNA - FAIRYTALES SHOULDN'T END Fairytales Shouldn’t End er önnur útgáfa Lúpínu af vænt