Margir annmarkar voru á frágangi björgunarbáts strandveiðibáts sem sökk úti fyrir Patreksfirði síðasta sumar. Þetta kemur fram í skýrslu Rannsóknarnefndar samgönguslysa (RNSA) sem var birt í dag. Strandveiðibáturinn Ormurinn langi sökk úti fyrir Patreksfirði 30. júní 2025. Magnús Þór Hafsteinsson, sjómaður og fyrrverandi þingmaður, lést.Í skýrslunni eru taldir upp ýmsir annmarkar, meðal annars breytingar á Orminum langa sem ekki voru í samræmi við skráningu og ófullnægjandi eftirlit með gúmmíbjörgunarbáti.Magnús féll frá borði en nærstaddur bátur reyndi að koma honum til bjargar. Skipstjóra bátsins tókst ekki að hífa Magnús um borð og brá á það ráð að binda hann við síðu bátsins og sigla rólega til móts við björgunarskipið Vörð II. Magnús var við meðvitund í fyrstu og var hífður um borð þa