Meiri hluti atvinnuveganefndar hefur lagt til að afnám skel- og rækjubóta og línuívilnunar verði fellt brott úr frumvarpi um breytingu á lögum um stjórn fiskveiða. Flutningsmaður frumvarpsins er Eyjólfur Ármannsson innviðaráðherra.Lilja Rafney Magnúsdóttir, formaður atvinnuveganefndar og þingmaður Flokks fólksins, segir það gert vegna þess að samstaða hafi ekki náðst um málið með stjórnarandstöðu. Enn standi til að ráðast í heildræna endurskoðun á skel- og rækjubótum, línuívilnun og byggðakvótakerfinu en frumvarp þess efnis er væntanlegt í haust.Lilja Rafney fagnar því að samstaða hafi náðst um að fá 2.700 tonna viðbótina við strandveiðiheimildir í sumar. „Það lítur út fyrir að þetta verði mesta magn sem verið hefur í gegnum árin til strandveiða í sumar,“ segir hún í samtali við fréttastof