Fjöldi silfurpeninga frá víkingaöld hefur fundist í akri nálægt Rena í Austurdal í Noregi. Fornleifafræðingar segja að þessi fornleifafundur eigi engan sinn líka í Noregi. Nú þegar hafa nærri þrjú þúsund silfurpeningar fundist í akrinum en áfram er leitað á svæðinu.