Íslandshótel munu taka við hótelrekstri við í húsnæði Suðurlandsbraut 2 og Nauthólsveg 52 sem hefur hýst Hilton Reykjavík Nordica og Reykjavík Natura. Samhliða því lætur Berjaya Hotels Iceland af rekstri hótelanna en malasíska fyrirtækið keypti hann af Icelandair Group. Stjórnendur Íslandshótela hyggjast taka yfir ráðningarsamninga starfsfólks.