Heimilt verður að hjóla gegn einstefnu á afmörkuðu svæði í gamla Vesturbænum. Breytingin er liður í því að bæta tengingar í hjólaneti borgarinnar og auðvelda íbúum og öðrum vegfarendum að komast leiðar sinnar á öruggan og skilvirkan hátt. Umhverfis- og skipulagsráð Reykjavíkurborgar samþykkti tillögu þessa efnis á fundi sínum í morgun.