Staða vegna vændis og mansals virðist aldrei hafa verið alvarlegri. Brýn þörf er á markvissri aðgerðaáætlun stjórnvalda sem tekur mið af ástandi dagsins í dag, segir dósent við lagadeild HR.Í umfjöllun Kveiks um vændisstarfsemi á Íslandi kemur fram að vændi sé mjög umfangsmikið og auglýsingar hafi aldrei verið fleiri. Svala Ísfeld Ólafsdóttir, dósent við lagadeild HR, segir þáttinn hafa gera mikilvæga úttekt á stöðu vegna vændis á Íslandi. Sömuleiðis þjóni hann sem áminning um alvarleika kynlífsmansals.„Eftir að hafa horft á þáttinn fékk maður auðvitað þá tilfinningu, þá sýn og þær upplýsingar að við værum á margan hátt búin að missa tökin á vændi og mansali í kynferðislegum tilgangi,“ segir Svala og bætir við að umfjöllunin hafi eflaust slegið marga. STÓR HLUTI VÆNDISMÁLA FELLUR UNDIR M