Sæði úr rúmlega sjötíu dönskum sæðisgjöfum sem var sent hingað til lands hefur verið tekið úr notkun vegna erfða- og genagalla frá árinu 2013. Gjafarnir eru flestir danskir eins og í máli Kjelds sem vakti athygli fyrir jól.Evrópski sæðisbankinn í Danmörku seldi sæði Kjelds, gjafa 7069, í 17 ár áður en það var tekið úr notkun vegnar alvarlegrar genastökkbreytingar sem veldur krabbameini.Eftir sameiginlega umfjöllun rannsóknarblaðamanna Sambands evrópskra sjónvarpsstöðva fyrir jól kom í ljós að minnst 211 börn um alla Evrópu eru getin með sæði Kjelds, þar af fjögur hér á landi. Þegar umfjöllunin var birt var talið að börnin væru 197 en fleiri börn bættust síðar við.Það hefur fengist staðfest að eitt barnanna hér á landi ber ekki stökkbreytinguna en Kastljós hefur ekki upplýsingar um hin þrjú