Samfylkingin mælist með mest fylgi í Hafnarfirði í nýrri könnun Maskínu, líkt og í síðustu könnun. Það sem vekur hins vegar athygli er að Viðreisn fer upp fyrir Sjálfstæðisflokk og mælist næst stærst flokka. Meirihluti Sjálfstæðisflokks og Framsóknar er kolfallinn þrátt fyrir fylgisaukningu Framsóknar.