Ræða sem Karl III Bretakonungur flutti í bandaríska þinginu í gær virðist hafa slegið í gegn ef marka má erlenda miðla. Konungurinn vitnaði í Wilde, Dickens, Roosevelt og fleiri fyrirmenni og hlaut oftar en einu sinni standandi lófatak. Hann lagði áherslu á samband Bretlands og Bandaríkjanna sem hann sagði ómissandi. MEISTARANÁMSKEIÐ Í „MINNA ER MEIRA“ Karl er fyrsti breski konungurinn til að halda ræðu á Bandaríkjaþingi, nákvæmlega 250 árum eftir að Bandaríkin lýstu yfir sjálfstæði. Hann fékk höfðinglegar viðtökur á þinginu og tóku þingmenn og ráðherrar á móti honum með dynjandi lófataki.BBC segir hann hafa fengið standandi lófatak tólf sinnum. Þingmenn og áhorfendur hafi oft klappað og risið úr sætum meðan á ræðunni stóð.Hann fór yfir víðan völl í ræðunni og minntist strax í upphafi á