Allt
Innlent
Erlent
Viðskipti
Íþróttir

Segir húsnæðispakka ekki taka á bráðavanda

Til stendur að byggja allt að 1.400 íbúðir á næstu árum samkvæmt húsnæðispakka sem ríkisstjórnin kynnti í gær. Húsin verða byggð á ríkislóðum í Reykjavík og aðgerðirnar eru liður í áformum stjórnvalda um að skapa jafnvægi á fasteignamarkaði. Áður höfðu meðal annars verið kynntar tillögur um stuðning við leigjendur og fatlað fólk.Monika Hjálmtýsdóttir, formaður Félags fasteignasala, segir aðgerðirnar hafa lítil áhrif á fasteignamarkaðinn.„Ég efast ekki um að þetta sé mjög gott innlegg inn í félagslega kerfið en þetta snertir ekki á sjálfum fasteignamarkaðinum,“ segir Monika.„Það sem verið er að kalla eftir eru aðgerðir sem myndu koma til framkvæmda núna. Þessi pakki miðar að náinni framtíð en snertir ekki á markaðinum eins og hann er núna og þeim vanda sem hann stendur frammi fyrir,“ segir
Segir húsnæðispakka ekki taka á bráðavanda

Skráðu þig inn eða stofnaðu aðgang til að skrifa ummæli

Skoða nánar

Um Blaðbera·Vefþjónusta