Um 459 milljóna króna afgangur var á rekstri Rangárþings ytra í fyrra þegar bæði eru tekin með sveitarsjóður og fyrirtæki í eigu sveitarfélagsins. Ef aðeins er litið til sveitarsjóðs og starfseminnar, sem er að öllu leyti fjármögnuð með skatttekjum, nam afgangurinn 376 milljónum.Ársreikningur verður lagður fram til fyrri umræðu í sveitarstjórn í dag. Tekjur A og B hluta námu 4.324 milljónum og jukust um tólf prósent milli ára. Útgjöld hljóðuðu upp á 3.713 milljónir, það er tólf prósentum meira en í fyrra.Fánar Rangárþings ytra við hún á hringtorgi.RÚV / Þorgils Jónsson