Atli Ísleifsson og Sunna Sæmundsdóttir eru orðin fréttastjórar á fréttastofu Sýnar. Árni Sæberg verður varafréttastjóri. Sunna hefur unnið á fréttastofu Sýnar frá 2017 og Atli frá 2014. Þau hafa bæði verið varafréttastjórar frá 2021. Kolbeinn Tumi Daðason, sem var fréttastjóri allra miðla Sýnar, varð ritstjóri fréttastofunnar þegar Erla Björg Gunnarsdóttir hætti í janúar. Atli og Sunna taka við stöðunni sem hann gegndi áður. Fréttastofa Sýnar flytur fréttir á Vísi, Bylgjunni og Sýn.Sýn