Breska hlaupakonan Eilish McCoglan hlaut slæm meiðsli á fæti í London maraþoninu sem fór fram á sunnudag. Var eins og fóturinn á henni hefði „sprungið.“ Greint er frá þessu í breska blaðinu The Sun. McCoglan, sem er 35 ára gömul, kláraði maraþonið á tæplega 2 klukkutímum og 25 mínútum. Hafnaði hún í sjöunda sæti, efst Lesa meira