Allt
Innlent
Erlent
Viðskipti
Íþróttir

Frakkar hvattir til að yfirgefa Malí

Frönsk stjórnvöld hvetja franska ríkisborgara til þess að yfirgefa Afríkuríkið Malí við fyrsta tækifæri. Óstöðugt ástand er í landinu. Aðskilnaðarsinnar Túarega og herskáir íslamistar í Malí náðu um helgina völdum í bænum Kidal norðarlega í landinu, sem gegnir lykilhlutverki í stjórnsýslu norðurhlutans og vilja koma þar upp sjálfstæðu ríki.Umferð í Bamako á Malí, 27. apríl 2026.EPA / HADAMA DIAKITEÞar hafa herskáir íslamistar árum saman haft tögl og hagldir og gert líf íbúa þar nær óbærilegt með sprengjutilræðum, skotárásum og öðrum ódæðum. Frönsk yfirvöld ráða fólki eindregið frá ferðalögum til Malí, sem var frönsk nýlenda til ársins 1960.
Frakkar hvattir til að yfirgefa Malí

Skráðu þig inn eða stofnaðu aðgang til að skrifa ummæli

Skoða nánar

Um Blaðbera·Vefþjónusta