Allt
Innlent
Erlent
Viðskipti
Íþróttir

Niðurrif bygginga kemur kannski betur út í Excel-skjali en hver ætli kostnaðurinn sé fyrir samfélagið?

Magnea Guðmundsdóttir skrifar:Dvergshöfði 4, Breiðhöfði 3, Laugavegur 176, Kirkjusandur 2, Kringlan 1, Borgartún 1-3, Borgartún 5, Borgartún 34-36, Stóragerði 40, Dugguvogur 42 og Reykjavíkurvegur 60-62. Iðnaðarhús, verslanir og skrifstofur.Allt eru þetta byggingar sem hafa annað hvort verið rifnar á síðustu misserum eða bíða örlaga sinna um mögulegt niðurrif. Listinn er langt frá því að vera tæmandi. Tugþúsundir fermetra og tonna af steypu fara fyrir bí. Ekki bílskúrar, vinnuskúrar eða viðbyggingar heldur byggingar sem hýstu ferðamenn, hárgreiðslustofur, veitingastaði, ferðaskrifstofu og sportvöruverslun. Byggingar sem bera sögu af mannlífi, byggingararfi, tíðaranda og efniskennd. Byggingar sem eru ekki nógu gamlar eða merkilegar til að vera friðaðar en einhver ákvað að væru úreltar eða í
Niðurrif bygginga kemur kannski betur út í Excel-skjali en hver ætli kostnaðurinn sé fyrir samfélagið?

Skráðu þig inn eða stofnaðu aðgang til að skrifa ummæli

Skoða nánar

Um Blaðbera·Vefþjónusta