Fréttastofa RÚV býður upp á kosningapróf fyrir sveitarstjórnarkosningarnar í ár, eins og gert hefur verið fyrir undanfarnar kosningar til forseta og Alþingis.Í prófinu mun almenningur eiga þess kost að máta sig við frambjóðendur og lista í sínu sveitarfélagi með því að svara nokkrum spurningum, bæði almennum spurningum um stjórnmál og eins sértækari spurningum um sitt sveitarfélag eða sinn landshluta. SVÖRUM FRAMBJÓÐENDA SAFNAÐ Í GEGNUM MITT RÚV Forsendan fyrir því að prófið skili almenningi nothæfum niðurstöðum er að sem flestir frambjóðendur hafi áður skilað inn sínum svörum. Við opnum þess vegna frambjóðendagáttina núna til að safna svörum frá þeim áður en prófið er opnað almenningi.Frambjóðendur svara prófinu með því að skrá sig inn á undirsíðuna Mitt RÚV með rafrænum skilríkjum. Þa