„Það er auðvitað mjög átakanlegt að heyra þessar sögur og að eftirspurnin eftir vændi sé svona mikil á Íslandi,“ segir Saga Kjartansdóttir, sérfræðingur í vinnumarkaðsmálum hjá Alþýðusambandi Íslands, ASÍ.Kveikur fjallaði ítarlega um vændisstarfsemi á Íslandi í gærkvöld. Saga segir birtingarmyndir vændismansals og vinnumansals ólíkar. Hvort tveggja byggi þó á hagnýtingu fólks og sé arðbært, hvort sem um vændi eða vinnu sé að ræða.„Það er oft talað um að mansal byggir á hagnýtingu og sé hagnaðardrifið. Það er því miður arðbært að hagnýta fólk og stundum er hættan fyrir þá sem eru að hagnýta lítil. Þannig að það getur verið mikill hagnaður og lítil áhætta. Það held ég að eigi við bæði um vinnumansal og vændismansal,“ segir Saga. FÓLK LEITAR REGLULEGA TIL ASÍ Saga segir vinnumansal ekki fa