Verðbólga hjaðnaði lítillega í apríl og var 5,2 prósent síðustu tólf mánuði, samkvæmt mælingu Hagstofunnar. Hún var 5,4 prósent í mars. Þeir liðir sem leiddu helst til hækkunar neysluverðsvísitölu voru húsnæði, eldsneyti og flugfargjöld til útlanda.Verðbólga var þó talsverð í apríl og hækkaði vísitala neysluverðs um 0,81 prósent. Það er fjórða mesta mánaðarhækkunin síðustu tólf mánuði. Húsnæðiskostnaður jókst um 0,8 prósent, bensínverð um 12,1 prósent, dísilverð um 19,7 prósent og flugfargjöld um 6,1 prósent.Þetta er síðasta verðbólgumælingin áður en fyrirhuguð tímabundin lækkun á virðisaukaskatti á eldsneyti tekur gildi 1. maí. Þau lög hafa reyndar ekki enn verið sett, frumvarp um lækkunina verður tekið til annarrar umræðu á Alþingi í dag.Verðbólga hafði fram að þessari síðustu mælingu ve