Kári Sigurðsson, formaður Sameykis, og Sólveig Anna Jónsdóttir, formaður Eflingar, segja að það sé alvarlegt áhyggjuefni að Reykjavíkurborg forðist að taka ábyrgð á tjóni sem starfsfólk verður fyrir í störfum sínum.Formennirnir rituðu saman grein sem birtist á Vísi í dag. Þar segir að borgin setji þrönga túlkun á eigin reglum og kjarasamningsákvæðum ofar en öryggi starfsfólks. Þau segja að borgin hafi gengið langt í að láta tjón lenda á starfsfólki sínu frekar en að taka það á sig, jafnvel þegar það væri unnið af skjólstæðingum borgarinnar.Formennirnir tiltaka tvö dæmi. Annað af því þegar persónulegum munum starfsmanns á borð við fatnað, húslykla og heyrnartól hafi verið stolið þegar brotist var inn í íbúðarkjarna þar sem hann starfaði. Hitt af því að 150 þúsund króna rafhlaupahjóli starfs