Allt
Innlent
Erlent
Viðskipti
Íþróttir

Þyngja refsingu fyrrverandi forseta

Áfrýjunardómstóll þyngdi í dag dóm yfir Yoon Suk Yeol, fyrrverandi forseta Suður-Kóreu. Hann var sakfelldur í ársbyrjun fyrir að hindra framgang réttvísinnar í tengslum við tilraun til valdaráns 2024. Hann hlaut upphaflega fimm ára fangelsisdóm en refsingin var þyngd í sjö ára fangelsi eftir áfrýjun.Yoon hafði þegar verið sakfelldur fyrir tilraun til valdaráns og fékk fyrir það lífstíðardóm í fangelsi. Hann sætir líka ákæru fyrir að veita óvinum Suður-Kóreu liðsinni með því að senda dróna hersins til Norður-Kóreu snemma árs 2024. Hann neitar sök.Stuðningsmenn Yoon Suk Yeol með mynd af honum og slagorð.EPA / JEON HEON-KYUN
Þyngja refsingu fyrrverandi forseta

Skráðu þig inn eða stofnaðu aðgang til að skrifa ummæli

Skoða nánar

Um Blaðbera·Vefþjónusta