Árásirnar í Malí um helgina voru þær umfangsmestu sem sést hafa þar í landi frá árinu 2012. Öryggisástandið þar í landi hefur ekki þótt verra um árabil eftir að víga- og uppreisnarmenn tóku höndum saman og réðust gegn herforingjastjórninni viðsvegar um Malí.