Framtíðarásýnd Garðabæjar og uppbygging í ört stækkandi samfélagi voru í brennidepli í oddvitaumræðum í gær og ljóst að afar skiptar skoðanir eru um hvert eigi að stefna. Almar Guðmundsson, bæjarstjóri og oddviti Sjálfstæðisflokksins, sagði að kosningarnar myndu að miklu leyti snúast um uppbyggingu.Hiti færðist í umræðuna þegar sjónum var beint að fyrirhugaðri uppbyggingu á norðanverðu Álftanesi, þar sem gert er ráð fyrir 9 holu golfvelli og að húsum fjölgi úr tæplega 40 í um 200.Hvað skal vera í forgangi við uppbyggingu í Garðabæ? Á að fjölga sérbýlum, minni íbúðum eða menningarhúsum og hvernig passar nýr golfvöllur á Álftanesi inn í framtíðarskipulag bæjarins? Tekist var á um þetta og mun meira í oddvitaumræðum í gær.Hlynur Bæringsson, oddviti Framsóknarflokksins, vill að þessum áformum