Fyrstu niðurstöður rannsóknar sem framkvæmdastjórn Evrópusambandsins er að framkvæma á Instagram og Facebook samfélagsmiðlunum, benda til þess að að Meta, móðurfyrirtæki þessara miðla, geri ekki nóg til þess að hindra aðgang barna undir 13 ára aldri að þessum miðlum.„Þrátt fyrir skilyrði sem Meta hefur sjálf sett um að lágmarksaldur notenda sé 13 ár, virðast úrræði fyrirtækisins ekki vera skilvirk,“ segir í fréttatilkynningu framkvæmdastjórnarinnar sem birt var í morgun. „Úrræðin koma hvorki í veg fyrir að börn undir þessum aldri fái aðgang að miðlunum, né fjarlægi aðgang þeirra.“ Auðvelt sé fyrir unga notendur að villa á sér heimildir og á sama tíma sé flókið að tilkynna notkun þeirra til fyrirtækjanna.Í tilkynningunni segir ennfremur að eigið mat fyrirtækisins á notkun barna stangist á v