Allhvasst verður víða á norðanverðu landinu í dag en útlit fyrir hægari vind syðra. Hitinn gæti farið í 13-14 stig á Norðaustur- og Austurlandi þegar best lætur en svalara verður annars staðar.Veðurspáin er svohljóðandi:Suðvestan átta til átján metrar á sekúndu, hvassast norðan til. Skúrir eða slydduél en léttskýjað á Norðaustur- og Austurlandi. Hiti 3-13 stig, mildast eystra.Suðvestan 5-13 á morgun. Skúrir eða slydduél en þurrt að mestu og bjart með köflum austanlands. Heldur svalara.Næstu daga má búast við að svalt verði í veðri.