Ungur maður að spila tölvuleiki af kappi reyndist uppspretta tilkynningar til lögreglu um hávaða og mögulegt heimilisofbeldi í Mosfellsbæ.Skjáskot úr tölvuleiknum vinsæla, League of Legends. Ekki liggur fyrir hvaða tölvuleikur var uppspretta hávaðans í Mosfellsbæ.Ljósmynd / SkjáskotFrá þessu er greint í dagbók lögreglunnar á höfuðborgarsvæðinu og einnig því að karlmaður var handtekinn í vesturhluta Reykjavíkur eftir að hafa ógnað leigubílstjóra, reynt að komast hjá greiðslu fargjalds og flúið undan lögreglumönnum sem kallaðir voru til.Maðurinn reyndist einnig í annarlegu ástandi og var því vistaður í fangaklefa, að því er segir í dagbók lögreglunnar. Tveir meiddust lítillega í árekstri vespu og reiðhjóls og hið sama var uppi á teningnum í tveggja bíla árekstri í Hafnarfirði.