Ágreiningur hefur risið innan stjórnar Orkuveitu Húsavíkur vegna kjara sem tvö fyrirtæki hið minnsta hafa notið á heitu vatni í yfir áratug hjá orkufyrirtækinu. Kemur málið upp í aðdraganda sveitarstjórnarkosninga í Norðurþingi þar sem sex listar bjóða fram.