Evrópa hlýnar tvöfalt hraðar en önnur svæði heimsins af völdum loftslagsbreytinga. Ný stöðuskýrsla evrópsku loftslagsstofnunarinnar Kóperníkusar fyrir árið 2025 í Evrópu var birt í morgun þar sem fram kemur að hlýrra var en í meðallagi í 95 prósent landa álfunnar.Árið var það hlýjasta eða næsthlýjasta í nokkrum löndum Norður-Evrópu frá upphafi, meðal annars í Svíþjóð, Finnlandi, Noregi, á Bretlandseyjum og á Íslandi. Loftslagsbreytingarnar leiði af sér auknar veðuröfgar, minna frost, fjölgun hitabylgja, þurrka, úrhellis og flóða.Kóperníkus segir helstu birtingarmynd hlýindanna vera víðfeðma gróðurelda í ríkjum Evrópusambandsins síðasta vor og sumar.Yfir tíu þúsund ferkílómetrar lands urðu eldunum að bráð, fjörutíu prósent þess var á Spáni. Aldrei hefur jafnstórt landsvæði í Evrópu brunnið