Allt
Innlent
Erlent
Viðskipti
Íþróttir

Líklegt þykir að þingnefnd gangi eftir svörum stríðsmálaráðherra um stöðu styrjaldarinnar

Bandaríska stríðsmálaráðherrans Petes Hegseth bíður þungt spurningaflóð um stöðu stríðsins gegn Íran þegar hann mætir til yfirheyrslu hjá hermálanefnd fulltrúadeildar þingsins í dag.Umræðuefnið er krafa Donalds Trump forseta um einnar og hálfrar billjónar dala framlag til hernaðarmála. Dan Caine, yfirmaður herforingjaráðsins, kemur einnig fyrir nefndina. Hegseth hefur ekki mætt nefndarmönnum frá því að Bandaríkin og Ísrael hófu árásir á Íran 28. febrúar.Þingmenn beggja flokka hafa lýst megnri óánægju með þær upplýsingar sem þeim hafa verið veittar um framgang stríðsins og því má búast við fjörugum skoðanaskiptum í dag.Trump segir Íran hernaðarlega búið að vera. Hann sagði þetta við Karl III Bretakonung og aðra gesti á hátíðarkvöldverði í Hvíta húsinu. Trump impraði ekki á Íransstríðinu við
Líklegt þykir að þingnefnd gangi eftir svörum stríðsmálaráðherra um stöðu styrjaldarinnar

Skráðu þig inn eða stofnaðu aðgang til að skrifa ummæli

Skoða nánar

Um Blaðbera·Vefþjónusta