Umfangsmikið kynferðisofbeldi sem beitt er sem vopni í borgarastyrjöldinni í Súdan hefur valdið gríðarlegum geðheilbrigðisvanda að mati Alþjóðaheilbrigðisstofnunarinnar og hjálparsamtakanna Læknar án landamæra.Þau síðarnefndu sögðu í liðnum mánuði að vel á fjórða þúsund fórnarlömb kynferðisofbeldis, langflest konur og stúlkur, hefðu leitað aðstoðar þeirra í Norður- og Suður-Darfúr milli janúar 2024 og nóvember 2025.Alþjóðaheilbrigðisstofnunin telur ofbeldið enn umfangsmeira en þær tölur benda til enda sé súdönskum konum erfitt að leita læknishjálpar því þær þurfi oft að fara um langan veg, fátt sé um sérhæft starfsfólk, öryggi sé lítið auk þeirrar smánar sem þykir fylgja því að hafa verið nauðgað.Því sé afar krefjandi fyrir konur og stúlkur að leita sér aðstoðar, þótt brýnt sé að gera það