Allt
Innlent
Erlent
Viðskipti
Íþróttir

Kenískir lögreglumenn hætta glímunni við illskeytt glæpagengi

Allir þeir kenísku lögreglumenn sem áttu að aðstoða yfirvöld á Haítí í glímunni við illskeytt glæpagengi hafa yfirgefið landið. Stjórnvöld í Keníu buðust til að leiða alþjóðlega öryggissveit á vegum Sameinuðu þjóðanna sem öryggisráðið samþykkti fyrir tæpum þremur árum.Sveitin var alla tíð illa tækjum búin, undirfjármögnuð og verulega undirmönnuð og öryggisráðið samþykkti á síðasta ári að gera sveitina enn þá öflugri og fjölmennari með 5.500 lögreglu- og hermönnum. Um það bil 400 manna liðsauki frá Tsjad er þegar kominn til Haítí.Vopnaðir hópar glæpamanna hafa haldið víðfeðmum svæðum á Haítí í heljargreipum árum saman, með manndrápum, nauðgunum, gripdeildum og mannránum. Þeir ráða meðal annars stærstum hluta höfuðborgarinnar Port-au-Prince, að sögn Sameinuðu þjóðanna.Ástandið versnaði verul
Kenískir lögreglumenn hætta glímunni við illskeytt glæpagengi

Skráðu þig inn eða stofnaðu aðgang til að skrifa ummæli

Skoða nánar

Um Blaðbera·Vefþjónusta