Sonur indversks milljarðamærings hefur boðist til að taka að sér flóðhestahjörð sem hefur plágað Kólumbíu í mörg ár.Flóðhestahjörðin tengist alræmda eiturlyfjabaróninum Pablo Escobar en hann flutti framandi dýr ólöglega til landsins, þar á meðal einn karldýrs- og einn kvendýrsflóðhest. Escobar hélt flóðhestana á búgarði sínum, Hacienda Nápoles, lúxussetri sem staðsett er um 250 km norðvestur af höfuðborginni Bogotá.Eftir að Escobar var skotinn til bana af lögreglu árið 1993 gekk flóðhestaparið lausum hala og fjölgaði sér meðfram aðalá Kólumbíu, Magdalenu. Stofninn stækkaði og ýmsar aðferðir voru reyndar til að halda honum í skefjum, þar á meðal gelding, án árangurs. Nú hefur verið ákveðið að fella um 80 dýranna. HVERT LÍF SKIPTI MÁLI Anant Ambani, sonur ríkasta manns Asíu, Mukesh Ambani