Karl III Bretakonungur ávarpaði bandaríska þingið í kvöld en hann er í heimsókn í Washington. Í ávarpinu hvatti Karl Bandaríkin til að standa þétt við vestræna bandamenn sína, þar sem ágreiningur vegna Írans og Úkraínu gæti grafið undan tengslum yfir Atlantshafið.„Þær áskoranir sem við stöndum frammi fyrir eru of stórar til að nokkur þjóð geti borið þær ein,“ sagði hann. „Hver sem ágreiningur okkar er, hvaða ósætti sem við kunnum að hafa, stöndum við sameinuð í skuldbindingu okkar til að halda uppi lýðræðinu.“ SAMBAND FÆTT Í DEILUM Tilefni heimsóknarinnar er að 250 ár eru frá því að Bandaríkin fengu sjálfstæði frá Bretlandi. Þá er stefnt að því að reyna að treysta samband þjóðanna, sem hefur reynt á undanfarnar vikur.Karl lagði áherslu á söguleg tengsl þjóðanna tveggja og sagði samband