Allt
Innlent
Erlent
Viðskipti
Íþróttir

Tvöföldun í kosningu utan kjörfundar

Í dag höfðu 1.854 kosið utan kjörfundar vegna sveitarstjórnarkosninganna 16. maí. Það eru nærri tvöfalt fleiri en á sama tíma árið 2022, þegar 942 höfðu kosið. Sýslumaðurinn á höfuðborgarsvæðinu safnar þessum tölum saman daglega.Það eru tvær og hálf vika til kosninga og vinna við undirbúning stendur sem hæst. Landskjörstjórn hélt í dag fund með fulltrúum allra yfirkjörstjórna sveitarfélaga þar sem farið var yfir mikilvæg atriði við framkvæmd kosninganna, en þrír slíkir fundir verða fram að kosningum. LISTAKOSNINGAR Í FLESTUM SVEITARFÉLÖGUM Sextíu og eitt sveitarfélag er á landinu og listakosningar í langflestum þeirra, eða fimmtíu. Í sjö sveitarfélögum eru óbundnar kosningar, þar sem engir framboðslistar komu fram og í fjórum sveitarfélögum er sjálfkjörið. Þar birtist aðeins einn frambo
Tvöföldun í kosningu utan kjörfundar

Skráðu þig inn eða stofnaðu aðgang til að skrifa ummæli

Skoða nánar

Um Blaðbera·Vefþjónusta