Ríkisstjórn Bandaríkjanna ætlar að framleiða vegabréf með mynd af Donald Trump Bandaríkjaforseta í takmörkuðu upplagi í sumar. Vegabréfin eru hluti af hátíðarhöldum í tilefni af 250 ára afmæli sjálfstæðisyfirlýsingar Bandaríkjanna í júlí.Tommy Pigott, talsmaður utanríkisráðuneytis Bandaríkjanna, staðfestir þetta í samtali viðFox News.Mynd af Trump umkringdum texta sjálfstæðisyfirlýsingarinnar, bandaríska fánanum og undirskrift forsetans í gulli mun prýða innanverða kápu vegabréfanna. Á síðunni við hliðina á verður frægt málverk af undirritun sjálfstæðisyfirlýsingarinnar árið 1776.Pigott segir vegabréfin, sem verða með sérsniðnum listaverkum og endurbættum myndum, muni viðhalda „sömu öryggisþáttum og gera bandaríska vegabréfið að öruggasta skjali í heimi“.Bandaríska myntsláttan hefur einnig